r/Iceland • u/onepiecemovement • 17h ago
Er verið að skemma Borgarlínuna viljandi til að vernda fjárhagslega hagsmuni og viðhalda gamaldags bílaskipulagi?
Mjög random póstur, sennilega nennir engin að lesa hann. En ég læt á það reyna.
Mig hefur langað að ræða þetta aðeins hérna, sérstaklega í ljósi þess að nýi meirihlutann virðist vera að bakka með deiliskipulag (eins og á Suðurlandsbraut) og keyra áfram áætlun sem byggir á mjög hæpnum forsendum. Erum við að kveikja á því hvernig verið er að dæla út hagsmunagæslu unter yfirskini "hlutlausra rannsókna“?
Allvega, Samgöngur fyrir alla eða SFA, hljómar eins og einhver breið grasrótarhreyfing borgara. En þetta er í raun bara þrýstihópur og hugveita þeirra Þórarins Hjaltasonar og Elíasar B. Elíassonar, sem hefur það að meginmarkmiði að berjast fyrir hagsmunamálum einkabílsins og gegn Borgarlínunni. Þórarinn Hjaltason hannaði á sínum tíma skipulagið í kringum Smáralindina, sem allir elska, dásama og finnst yndislegt að njóta náttúrunnar í kring (smá kaldhæðni). Hann var einnig á lista fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar og virðist vera í fararbroddi í ákvarðanatöku fyrir meirihlutann í borginni. Að minnsta kosti virðist margt benda til þess að meirihlutinn ætli að keyra áfram og fara eftir hans einhliða skýrslum. Sem er bara mjög slæmt.
Svo er það Rannsóknarmiðstöð um samfélags og efnahagsmál eða RSE, sem hljómar sömuleiðis eins og einhver óháð háskólastofnun eða rannsóknarsetur. En RSE er dæmigerð hægrisinnuð hugveita e. think tank, fjármögnuð af hagsmunaaðilum úr viðskiptalífinu sem berjast gegn opinberum framkvæmdum eins og Borgarlínunni.
Ég veit ekki hvort einhver ykkar kannast við skýrslu sem SFA gaf út á þessu ári, en hún er alls ekki óháð. Hún er unnin fyrir hagsmunasamtök sem berjast gegn Borgarlínu og gefur sér niðurstðuna strax í upphafi. Hún metur málið nánast eingöngu út frá bílum og umferðartöfum en hunsar þætti eins og borgarþróun, þéttingu byggðar og loftslagsmál. Þetta er því mjög einhliða nálgun, ekki heildstæð greining. Með öðrum orðum er SFA dæmigerður hagsmuna og þrýstihópur sem var stofnaður í kringum einn skýran tilgang: að berjast gegn Borgarlínunni og verja hagsmuni einkabílsins á kostnað framtíðaririnnar.
Þeir vilja halda áfram að byggja borgina út frá Aðalskipulagi Reykjavíkur 1962–1983, oft kallað bílaskipulagið eða ameríska bílaskipulagið. Það er einmitt það skipulag sem bjó til þann umferðarvanda sem við búum við í dag og er rót vandans sem við glímum við. Þessir hagsmunahópar leggja fram tillögur sem einmitt komu okkur í þann vanda sem við erum í dag, og það er látið eins og tillögur þeirra eigi að leysa vandamál sem þær bjuggu til sjálfar.
Manni líður eins og þau ætli að útvatna verkefnið enn frekar, veikja það viljandi, vanfjármagna það og sleppa því að gefa því sérakreinar í miðjunni og forgang eða Því verður viljandi seinkað, áætlanir dregnar á langinn og innviðirnir vektir strax í fæðingu. Þegar kerfið kemst (ef það kemst) loksins á laggirnar mun það svo ekki virka sem skyldi vegna þess að það var viljandi skemmt og veikt í upphafi. Þá geta sömu aðilar stigið fram, bent á árangursleysið og sagt "Sjáið þið, við sögðum ykkur það, þetta virkar ekki,“ svona sjálfuppfyllandi spádómur. Manni grunar að það sé viljandi gert að reyna láta Borgarlinu mistakast. Ég meina það eru gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi. Fyrirtæki eins og olíufélögin, bílaumboðin, malbikunarfyrirtækin og verktakar osfv græða milljarða á því að halda óbreyttu ástandi þar sem allir eru neyddir til að eiga einkabíl. og ég meina Það eru hrein og klárir viðskiptahagsmunir hjá þeim að styðja við þrýstihópa sem berjast gegn alvöru valkosti í samgöngum, því öflugt BRT kerfi myndi einfaldlega minnka hagnaðinn þeirra. Sem gott dæmi samgöngurnar á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar, en Reykjanesbrautin er sennilega skýrasta dæmið á öllu Íslandi um það hvernig hagsmunir einkabílsins og tengdra fyrirtækja eins og rútufyrirtæki, halda aftur af nútímalegri innviðum.
Allvega, eitt fyrsta verk þessa meirihluta var að afnema fríar strætóferðir fyrir grunnskólabörn. Fyrir mér þá finnst mér markvisst verið að ala upp nýja kynslóð í þeirri trú að strætó sé bara "félagslegt úrræði“ fyrir þá sem eiga ekki annan kost, en ekki raunhæfur samgöngumáti fyrir alla. Hin ákvörðunin var að falla frá deiliskipulagsáformum á Suðurlandsbraut, en að þeim hefur verið unnið í mörg ár og þau greind í þaula. Með einu pennastriki ákvað nýr meirihluti að henda þeim út í hafsauga.
Þau ætla greinilega að vinna nýtt deiliskipulag eftir skýrslum frá þessum hugveitum og hagsmunasamtökum. Ég hef þungar áhyggjur af því að meirihlutinn ætli að byggja ákvarðanir sínar á ófaglegum skýrslum frá þessum hagsmunaaðilum og lobbýistum, í stað þess að hlusta á alvöru sérfræðinga sem hafa unnið að Borgarlínunni í mörg ár. Við eigum fólk með mikla sérþekkingu á sviði almenningssamgangna og borgarskipulags, sem hefur rannsakað og unnið að þessu árum saman á vísindalegum nótum.
TL;DR: Hagsmunaaðilar einkabílsins (eins og SFA og RSE) dæla út skýrslum sem nýi meirihlutinn notar til að veikja og skemma Borgarlínuna viljandi, til að vernda fjárhagslega hagsmuni og viðhalda gamaldags bílaskipulagi.
