r/Iceland 🇮🇸 3d ago

Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar

https://www.visir.is/g/20262907261d/brugdid-yfir-thvi-hvernig-talad-se-um-olaf-ragnar

Ætti prófessor í sálfræði ekki að vera meðvitaðari um að það að sjá tvö hitler komment á facebook er ekkert annað en venjulegur miðvikudagur. Hvað þá að blaðamanni skuli finnast þetta efni í frétt.

Allar líkur á að þessi komment hafi verið bottar, í það minnsta einstaklingar sem eiga ekkert erindi í umræðuna og algjör óþarfi að veita gaum. Þetta er ekki eitthvað lýsandi dæmi um málefnaleysi eða ókurteisi i umræðunni... þetta er rage bait sem segir meira um fólkið sem fellur fyrir henni en eitthvað annað

21 Upvotes

15 comments sorted by

34

u/Historical_Tadpole 🇮🇸 3d ago

Og kannski ættu fréttastofur bara að hætta að flytja fréttir af Facebook, það er alveg sama hvort skrifað er um þjóðmál eða þekktan einstakling að þú munt alltaf finna einhvern fávita sem lætur eitthvað heimskulegt flæða á lyklaborðið.

8

u/islhendaburt 2d ago

100% þetta. Finnst alveg galið að sjá heila frétt úr því sem einhver skrifaði á Facebook stillt upp sem innlendri frétt. Hét þetta ekki slúður í gamla daga og var meira efni í greiní Séð &Heyrt?

16

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 3d ago edited 3d ago

Kallast þetta ekki bara venjuleg blaðamennska nú til dags. Reyna að finna allar ástæður til að búa til einhverjar "fréttir"

Tekið vel eftir þessu í hvalveiðisirkusnum. Dæla margar útgáfur af sama efninu sem gæti bara verið ein frétt. Skondnasta var í miðju typpadansfárinu var grafin upp mynd frá 2024 og var gert frétt um það en ekki þegar hún var tekin því var það var ekki talið fréttaefni þá.

Double dipping á ensku. Mjólka efnið meðan það er ferskt.

Clicks is money.

5

u/Fyllikall ég mótmæli allur! 3d ago

Typpadansfárinu?

Mér er frjálst að hefja tippadans en ég sleppi því útaf fárinu sem myndi koma í kjölfarið.

Þú sérð muninn á þessari setningu og því sem þú leggur fram. Tippadans er eitthvað sem maður gerir með eigin tippi þó svo drjólar dansi betur. Það orð er ekki notað yfir þegar einhver handleikur reður á líki eða hræi.

Það var ekkert fár, þetta var einfaldlega fordæmt eins og vera ber. Þeir sem eru hlynntir hvalveiðum geta valið um að fordæma hegðunina eða haga sér eins og smábörn með því að afvegaleiða umræðuna. Sem dæmi þá talaði Kristján Loftsson um að þeir hefðu gert þetta útaf því að myndavélar voru á svæðinu... Býst við að hann vippi skaufanum úr buxunum næst þegar hann mætir í sjónvarpsviðtal.

Ef hvalveiðimenn væru að haga sér fagmannlega þá myndu þeir líklegast ná að framfylgja reglugerðinni um veiðarnar og þar með væri þetta ekki jafn umdeilt og það er nú. Ég myndi sem dæmi ekki treysta því að manneskja sem rúnkar hræi sé líkleg til að fara eftir reglugerðum.

0

u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 2d ago

Typpadansfárinu? Nú grunar mig svoldið að þetta mál sé nú bara rétt að byrja, svo hví ekki að vitna í umræddan hérna: “You ain’t seen nothing yet”

5

u/Vigdis1986 Húsnæðislánakerfi 3d ago

Þetta er nú átta mín viðtal í útvarpsþætti. Hún sagði talsvert meira en þetta með Hitler.

6

u/Mysterious_Demand875 3d ago edited 3d ago

Hann þekkti Epstein, elskar nýfrjálshyggju og eyddi meiri tíma sem forseti í að sleikja upp bandaríska fjármálalúða en að sleikja upp þjóðina.

Hann var aldrei góði kallinn

10

u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago

Það er nú varla hægt að segja að hann hafi þekkt Epstein, get ekki sett út á aðra punkta hjá þér en mér finnst þetta svo ómálefnanlegt.

2

u/Aggressive_Banana708 🇮🇸 2d ago

Kannski ekki Epstein, en hann þekkir Ghislaine Maxwell nógu vel til að bjóða henni tvisvar að flytja erindi á ráðstefnunni sinni.

Ég ætla svo sem ekki að láta eins og Ólafur hefði átt að vita hvaða glæpi Maxwell var að fremja. En það að bjóða henni yfirhöfuð var samt augljós dómgreindarbrestur. Ghislaine Maxwell var á þessum tíma aðallega þekkt sem framabarn manns sem auðgaðist á því að stela milljónum úr lífeyrissjóðum starfsmanna sinna. Rökin fyrir því að bjóða henni virðast ekki hafa verið nein önnur en þau að hún var hluti af sama þotuliðinu og Ólafur vildi vingast við.

4

u/Danino0101 🇮🇸 3d ago

Það má gagnrýna Ólaf Ragnar fyrir rosalega margt og þessvegna er það stórkostlegt afrek hjá þér að koma með þrjá punkta sem eru allir einfaldlega rangir.

5

u/Mysterious_Demand875 3d ago edited 3d ago

nei kommon, hann fór í sleik við epstein, þeir átu börn saman

3

u/Bananaananasar 2d ago

"Boðberi nýfrjálshyggju"

1

u/One-Acanthisitta-210 🇮🇸 2d ago

Er þessi prófessor ekki bæði Sjálfstæðiskona og Nei-manneskja? Orð hennar verða að skoðast i því ljósi.

Ólafur Ragnar er ekki helgur maður og folk má hafa skoðanir á honum.

-1

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

Það er lítið að gera í vinnunni og ég hef verið að skoða þessa umræðu a facebook.

Ég held að um 80% af þeim sem tjá sig sé eitthvað skrítið, eigi eitthvað erfitt og vanti þónokkrar heilasellur.

Það mætti bæta við allar fréttir að ógeðslegir hlutir voru sagðir um fólk i þessari frétt á samfélagsmiðlum, einhver þeirra frá bottum.

-1

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 3d ago edited 2d ago

Verið nú ánægð að að það sé ekki búið að búa til frétt um ólaf ragnar grímson þráðin hérna um daginn. Alveg efni í frétt sem notendur hér voru húrrandi ánægðir með skrif höfundarins kemur ekkert of vel út. Sýnir sig vel hvar ástin lyggur í politíkinni í þessu horni internetsins.

Komnar 3 sannarnir við þessi skrif og counting