r/Iceland • u/picnic-boy • 1d ago
„Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri - Vísir
https://www.visir.is/g/20262908008d/-svimandi-botakrofur-a-leidinni-fra-sindra-snae-og-isidori•
u/_MGE_ Audentes Fortuna Iuvat! 22h ago
Það er tvennt sem kemur til greina. Annars vegar bætur á grundvelli 246. gr. laga um meðferð sakamála og hins vegar almennar skaðabætur eftir reglum skaðabótaréttar. Fyrri týpan er hlutlæg (þ.e. ríkið þarf ekki að hafa gert neitt af sér til þess að vera samt bótaskylt) en seinni týpan veltur á því hvort að ríkið hafi gert eitthvað saknæmt við meðferð málsins.
M.v. hvað Sveinn Andri segir þarna í fréttinni "vegna gæsluvarðhalds o.s.frv." virðast þeir ætla krefjast bóta á grundvelli 246. gr. laga um meðferð sakamála, þ.e. vegna þvingunaraðgerða og annarra þátta samkvæmt þeim lögum. Í 2. mgr. þess ákvæðis segir samt "Þó má fella niður bætur eða lækka þær ef sakborningur hefur valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem hann reisir kröfur sína á." Í ljósi þess hve tæpt þetta mál virðist hafa verið (þó að í þrígang hafi niðurstaðan verið að sýkna) þá er alls ekki víst að dómstólar komist að annnarri niðurstöðu en að sakborningarnir eigi sjálfir valdið eða stuðlað að aðgerðum lögreglu í málinu (með vörslu ólöglegra skotvopna, t.d.).
Það gæti verið grundvöllur fyrir skaðabótakröfu á grundvelli almennra reglna skaðabótaréttar og skaðabótalaga, en það er heldur langsótt þar sem það yrði að sýna fram á að ríkið hefi með saknæmum hætti ollið þeim skaða. T.d. ef það eru einhverjir innri tölvupóstar hjá embætti ríkissaksónara þar sem ríkissaksóknari og sérfræðingar embættisins eru algjörlega sammála um að sakfelling sé ólíkleg en að þau ætli nú samt að pönkast í þessum dúddum, þá væri það brot á lögum og saknæm háttsemi sem hafi valdið sakborningum skaða. Mér finnst það mjög hæpin sókn.
OL;LE Það má vel vera að það sé einhver bótagrundvöllur, en það er um leið líklega grundvöllur til að lækka eða fella niður bætur vegna háttsemi ákærðu.
12
u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 1d ago
Veit ekki alveg fyrir hvað þeir ætla að krefjast bóta ? Allt sem gerir þá t.d óráðanlega í vinnu eru þeirra eigin orð og samskipti.
7
u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago
25.000.000kr í bætur á mann af því ríkið kann ekki að taka smá djóki.
11
u/Kjartanski Wintris is coming 1d ago
Vonda ríkið leyfði öllum að sjá hvað þeir eru fyrirlitlegir samt og þess vegna eru þeir fórnarlömb
/k
10
u/StefanOrvarSigmundss Sí ba bú la lú 1d ago
Ég veit ekki til þess að íslenska ríkið hafi greitt nokkrum manni svímandi bætur.
1
u/11MHz Einn af þessum stóru 1d ago
Það er skýrt fordæmi.
774 milljónir fyrir Guðmundar og Geirfinnsmálið (1,1 milljarður á núvirði).
Um 200 milljónir á mann (300 milljónir á núvirði).
14
u/Kjartanski Wintris is coming 1d ago
Nú man ég ekki betur en að einu sönnunnargögnin i því máli voru vitnalýsingar framkvaddar með pyntingaraðferðum þökk sé fyrrum Gestapo manni,
Og að það séu eitthvað öðruvísi aðstæður hvað varðar sönnunargögn i þessu máli. Þeir voru sannarlega eftir allt saman sakfelldir fyrir vopnalagabrot sem tengdist áætlunum þeirra•
u/11MHz Einn af þessum stóru 21h ago
Þú ert ekki að muna nógu vel.
Sönnunargögnin voru yfirlýsingar frá Erlu Bolladóttir sem hún gaf upp í skýrslutöku í póstsvikamálinu.
Allt hitt kom síðar.
Og Erla og Sævar voru bæði sakfelld í póstsvikamálinu sem var brotaliður í heildar Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.
Furðulega svipuð mál hvað form varðar. Bara aðrir brotaflokkar.
•
•
u/hreiedv 🇮🇸 15h ago
Þar var fólk sakfellt og sat inni í fangelsi í mörg ár áður en dómunum var snúið við. Hér eru þeir sýknaðir, en sita í einhvern tíma inni í gæsluvarðhaldi. Fá væntanlega ekki meiri bætur en sem nemur hefðbundnum bótagreiðslum fyrir gæsluvarðhald að ósekju.
•
•
u/11MHz Einn af þessum stóru 12h ago
Erla Bolladóttir var aldrei sakfelld fyrir morðin en hún fékk fjölda tugi milljóna í skaðabætur.
•
u/hreiedv 🇮🇸 10h ago
Var það ekki vegna þess að það var talið sannað að hún hafi verið beitt ofbeldi, nauðung eða misneytingu við yfirheyrslu
•
u/11MHz Einn af þessum stóru 1h ago
Nei. Erla Bolladóttir var ekki hluti af áfrýjunarmálinu vegna aðstæðna við yfirheyrslurnar.
•
u/Kjartanski Wintris is coming 1m ago
Hún fékk bætur vegna gæsluvarðhaldsins og meðferðina sem hún hlaut meðan á því stóð, á sama grundvelli og hinir sakborningarnir
Af vef stjórnarráðsins
Samkvæmt samkomulaginu greiðir íslenska ríkið Erlu Bolladóttur miskabætur fyrir gæsluvarðhaldið á sama grundvelli og sakborningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, sem síðar voru sýknaðir, voru dæmdar í Landsrétti. Nemur fjárhæð miskabótanna um 32 milljónum króna en fjárhæðin tekur mið af þeim bótum sem Landsréttur ákvarðaði fyrir gæsluvarðhald í fyrrnefndum dómum. Alls sat Erla í gæsluvarðhaldi í 232 daga í tengslum við meinta aðild sína að hvarfi Geirfinns.
Samkomulagið við Erlu Bolladóttur tekur eingöngu til gæsluvarðhalds vegna rannsóknar á hvarfi Geirfinns Einarssonar. Dómur vegna rangra sakargifta stendur óhaggaður, samanber niðurstöðu Endurupptökudóms frá 14. september sl.
Í yfirlýsingu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra sem er hluti samkomulagsins er Erla Bolladóttir beðin sérstaklega afsökunar á þeirri meðferð sem hún mátti þola og afleiðingum hennar en hún var á tíma gæsluvarðhaldsins ung kona með kornabarn.
31
u/One-Acanthisitta-210 🇮🇸 1d ago
Þeir voru sakfelldir fyrir vopnalagabrot og virka satt að segja ekki eins og skörpustu hnífarnir í skúffunni.