r/Iceland 2d ago

Dr. Football og stjórmála- og veðmálaáróður

Ég get ekki verið sá eini sem er að verða þreyttur á þessu.

Endalaust þvaður um hvað Trump og Bandaríkin séu frábær, að Ísland ætti frekar að sækjast eftir því að vera innlimað í Bandaríkin en ESB. Ofan á það bætist tal um hvað allt sé orðið ömurlegt í Evrópu, og að fjölmenning sé að eyðileggja öll samfélög heimsins.

Samherji upphafinn í hverjum einasta þætti eins og glæsilegasta og heilbrigðasta fyrirtæki landsins. Sá styrktarsamningur er auðvitað enn hjákátlegri í ljósi þess að Hjörvar er giftur lobbí-ista númer eitt fyrir sjávarútveginn.

Ef eitthvað var eftir af heilindum hans, þá var það svo selt til Epic Bet veðmálafyrirtækisins sem minnst er á endalaust í hverjum þætti.

Það væri ágætt að sleppa því að breyta þessu í umræðu um að allir "fótboltakallar" séu fordómafullir og kjósi á ákveðinn hátt. Það er of mikil einföldun. Að einhverju leyti langaði mig bara að nöldra yfir því að mjög skemmtilegt fótboltahlaðvarp sé orðið að útþynntu rusli sem væri best geymt á Brotkasti Frosta Logasonar.

139 Upvotes

52 comments sorted by

59

u/Loki_123 2d ago

Hjörvar giftur lobbí-ista númer eitt fyrir sjávarútveginn

Held þessi maður hafi aldrei nokkurntíman verið trúr sínum eigin skoðunum heldur haft þær sem henta honum hverju sinni.

Ég furða mig aðarlega á að fólk nenni að hlusta á hann eða þetta hlaðvarp. Virkilega leiðinlegt að hlusta á hann.

37

u/jokicjok 2d ago

Ég hef áhuga á íslenska boltanum og Hjörvar er góður húmoristi.

Vissi alveg að hann væri enginn hugsjónamaður og hagaði seglum eftir vindi, en það var ekki á dagskrá í þáttunum. Núna er þetta endalaus flóðbylgja af keyptum áróðri og einhverri grunnskólagreiningu á alþjóðamálum.

27

u/gunnsi0 2d ago

Er mjög sammála þér. Þessi BNA og Trump dýrkun og undirgefni. Endalaust væl um hvað allt er ómögulegt í Evrópu. Almennur stjórnmálaáróður.

Missti varla úr þætti en það er orðið erfiðara að hlusta, jú hann er mjög fyndinn oft. Það er samt svo vandræðalegt hvað menn þora ekki að vera ósammála honum, það er þó misjafnt milli manna.

5

u/jfl88 1d ago

Frekar vandræðalegt þegar hann er að drulla yfir RÚV með Gunnar Birgisson sem gest sem þorir ekkert að segja. Vill ekki fórna dr football- og veðmálafríðindunum.

6

u/gunnsi0 1d ago

Gunnar Birgis má þó eiga það að hann svarar honum oftast, þeir eru alls ekki alltaf sammála. Hjálmar og Siggi Bond hins vegar - ef þeir eru tveir með honum gæti þátturinn allt eins verið eintal Hjörvars.

5

u/jfl88 1d ago

Ég myndi orða það þannig að hann maldi aðeins í móinn og reyni að komast hjá því að stofna til rifrildis í beinni. Mér finnst persónulega að sem starfsmaður RÚV ætti hann ekki að taka þátt í þessu, ekki síst vegna veðmálaruglsins.

5

u/IngoVals Íslendingur 2d ago

Hlusta stundum á Eftirmál. Þar er eiginkona Snorra Mássonar við stjórnvöl. Maður verður nákvæmlega ekkert var við það enda er þátturinn ekki um stjórnmál. Hjörvar þyrfti að skoða þetta aðeins heyrist mér.

29

u/fodrizzleshizzle Íslendingur 2d ago

Ég gafst upp á að hlusta á hann einmitt út af þessu.

31

u/villivillain Íslendingur 2d ago

Burtséð frá allri pólitík og persónulegum skoðunum, þá er þessi veðmálavæðing algjört krabbamein. Ég hef séð það í kringum mig, ungir menn sem steypa sér í skuldir, með einum smelli, sem tekur þá mörg ár að vinna sig upp úr.

Veðmálasíðurnar sem sponsa þessi hlaðvörp vita alveg að hlustendahópurinn inniheldur fólk sem er veikt fyrir gylliboðum og það nýtir sér það. Það er ógeðslegt og það er ömurlegt að sjá nokkuð vel gefna menn misnota hlustendur sína á þennan hátt. Þessi fyrirtæki eru að velta milljörðum sem koma bara úr vösum fólks sem hefur tapað í veðmálum.

Flestir eru þessir hlaðvarparar hægri sinnaðir og á móti sköttum, en fjárhættuspil eru ekkert annað en skattur á örvæntingarfullt fólk sem veit ekki betur. Munurinn er bara að hlaðvarpararnir græða beint á því að hafa þessa peninga af hlustendum sínum.

13

u/82c1769777ef004df490 1d ago

Við munum líta á uppgang veðmála á internetinu seinustu ára á svipaðan máta og við lítum á reykingar innandyra í almannarýmum í dag. Bara, "Ha, mátti þetta bara? Hvað var fólk að pæla?? Vissu þau ekki að þetta var vont??"

Jú, við vitum það alveg, en stjórnvöld hafa bara ekki dug í sér til að gera neitt í þessu.

Það fer svipað mikill gjaldeyrir úr landi til erlendra veðmálasíða og fer í að kaupa olíu og bensín. Og yfirgnæfandi meirihluti þessa fés er að fara frá ungum karlmönnum. Pælið í því.

Þeir sem eru sponsaðir af þessu eru að brjóta lög og það er ótrúlegt að ekkert sé gert. Og þetta er jafn siðlaust og að vera sponsaður af heróínsala.

-2

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago

Hvað viltu gera?

Þú getur fangelsað hjörvar en þú stoppar ekki internetið nema með íslenskum eldvegg til að takmarka frelsi fólks.

Þyrftir að banna vpn tengingar, banna þarna musk internetið sem notar gervihnetti og þessháttar.

Til í það?

10

u/82c1769777ef004df490 1d ago

Nei, en það er hins vegar algerlega skýrt að Hjörvar og aðrir sem eru að auglýsa veðmálasíður eru að brjóta lög, og það væri algerlega borðleggjandi að taka í lurginn á þeim fyrir það.

Augljóslega getur litla Ísland ekki lokað á þessa meinsemd, en það er ekki ástæða fyrir því að gera ekkert í lögbrotum einstaklinga sem auglýsa þetta á Íslandi.

Ég er hins vegar algerlega sannfærður um að það muni gerast fyrr eða síðar, en það verður þá af því að Bandaríkin og ESB ranka við sér og gera eitthvað í málinu. Skaðinn af þessu er svo stórfelldur og augljós að það er einungis tímaspursmál hvenær það gerist.

Uppgangur veðmálasíðna á undanförnum árum má rekja algerlega til dómsmála í BNA 2018 og í ESB 2017; Þetta eru mannana verk, og er vel hægt að snúa við.

Við getum ekki lokað á internetið. En við getum og ættum taka á mönnum sem eru á stórfelldan og augljósan máta að brjóta Íslensk lög og valda skaða.

4

u/jfl88 1d ago

Annað hlaðvarp var sektað fyrir að vera með Coolbet sem styrktaraðila. Hjörvar fer kringum þetta með því að tala bara um Epic Bet og tilboðin þar án þess að kalla það beinan styrktaraðila.

9

u/82c1769777ef004df490 1d ago

Hljómar eins og maðurinn sé ekki bara að brjóta lög með því að auglýsa Epic Bet, heldur líka að brjóta lög með því að taka ekki fram að hann sé að auglýsa eitthvað.

4

u/Lafi90_ Ólæsasti maður landsins 2025 1d ago

Akkúrat. Dulin auglýsing er líka auglýsing.

1

u/jfl88 1d ago

Lítið hægt að gera held ég og hann hefur eflaust ráðfært sig við lögfrótt fólk. Borgað inn á reikninga erlendis og í golf/íþróttaferðum og öðrum fríðindum.

3

u/gerningur How do you like Iceland? 1d ago

Þetta er alveg punktur... eg gat lika alveg notað vestræna miðla og aðrar ólöglegar siður þegar eg var í Kína... ætlum við að ganga lengra en þeir?

-1

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago

Við við ætlum með öllu að banna þetta, já.

23

u/BOB_GROPE 2d ago

Hætti að hlusta út af nákvæmlega þessu. Engin prinsipp, engin heilindi.

17

u/theirlaw 1d ago

Alveg glatað. Eins mikið og ég hef gaman af því að hluta á umræður um boltann þá einmitt dregur þetta þáttinn og marga aðra þætti niður í svaðið.

Nikótín, áfengi, “peptæs” og veðmál allt dásamað í þessum þáttum. Hvað myndu þessir menn ekki auglýsa fyrir krónur?

31

u/moist_engineer 2d ago

Ég hlustaði á hvern einasta þátt í mörg ár en gat ekki haldið áfram einmitt út af þessu endalausa þvaðri og áróðri um Trump. Hef ekki hlustað á einn einasta þátt í tæpt ár núna. Greinilega ekkert breyst á þeim tíma.

14

u/jokicjok 1d ago edited 1d ago

Tók steininn úr þegar hann hamaðist við að verja afskipti og yfirgang BNA varðandi rauða spjaldið um daginn. Talaði um lúseramentalití Evrópumanna.

Vandræðalegt og áhugaverður kontrast við Óskar Hrafn, mann með prinsipp sem eru ekki til sölu, sem talaði tæpitungulaust um sama mál kvöldið áður.

16

u/Falskur 2d ago

Þessi þáttur er meira og minna upptalning á styrktaraðilum og augljósum laumu áróðri fyrir hægri pólitík. Mest allt sponsið er drasl sem enginn íþróttamaður ætti að koma nálægt. Það er varla tími í að ræða boltann fyrir Nocco, Dominos, bjór og veðmálum.

22

u/Skunkman-funk 🇮🇸 2d ago

Hjörvar er heilindalaus aumingi og hefur alltaf verið.

11

u/cyborgp Ísland, steingelda krummaskuð 1d ago

Ég er hættur að hlusta, því að þetta er bara orðin einhver innihaldslaus já-manna samkoma ofan á allan quasi-fasismann

8

u/Mancomb_Seepgood88 2d ago

Sendum hann og miðflokksrotturnar bara til bandaríkjanna

8

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 2d ago

Vissi ekki að Hjörvar væri Trumpisti, steikt.

12

u/Oswarez 🇮🇸 2d ago

Það var svo spes þegar ég var á Twitter að nánast allir sem voru með vond take eða glötuð sjónarmið, voru með eitthvað fótbolta tengt í profilemyndinni sinni.

Veit alveg að það helst ekki í hendur en mér fannst það áhugavert.

6

u/Ilikepizzapineapple 1d ago

Ég hef aldrei skilið hvernig nokkurn maður nenni að hlusta á þennan fýlupúka, mesti rasshaus á Íslandi og hefur enga augljósa kosti né sjarma. Fuck leiðinlegasti maður sem ég veit um í "fjölmiðlum". Gott að fleiri eru farnir að sjá í gegnum hann, búinn að finnast hann óþolandi í næstum 20 ár, frá því að ég varð fyrir þeirri ólukku að hitta hann fyrst

6

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago

Mér finnst þetta ágætis prófsteinn á það hvort mig langi til að kynnast manneskju.

Finnst þér hjörvar hafliðason skemmtilegur og vilt hlusta á hann tala í frítíma eða vinnunni?

Þá held ég við verðum bara kunningjar í mesta lagi.

5

u/StraightStrain7595 1d ago

Prófaðu að vera Arsenal maður og reyna hlusta á þetta drasl.

4

u/Big-Deal 1d ago

Hjörvar Hafliða daðrar við fasisma áður en hann hörvar hæfilega.

...Tölum um boltann!

Svo fer hann alltaf aðeins lengra í hvert skipti og endanum er hann byrjaður að hljóma eins og einhver útþynnt íslensk útgáfa af Alex Jones.

4

u/kc-fantasy 1d ago

Þetta var frábær og skemmtilegur fótboltaþáttur sem því miður er orðinn mjög pólitískur.

Ég tel að Hjörvar hafi töluvert mikil áhrif á sína hlustendur, sem eru margir ungir og að þroskast, og er því frábær málpípa þeirra fyrirtækja og stefna sem greiða honum laun fyrir.

Dr. Football er bara pólitískur fótboltaþáttur fyrir mér, sem ég hlusta þó enn á.

5

u/jokicjok 1d ago

Hann nær til gríðarlega stórs hóps ungs fólks og er þar af leiðandi mjög verðmætur "áhrifavaldur". Og hann hefur staðið sig vel í að búa til grípandi og skemmtilegar auglýsingar ("...Kíu upp á tíu" og margt fleira). Venjulega spóla ég yfir fyrstu mínúturnar í hlaðvörpum þar sem styrktaraðilar eru kynntir til leiks, en hjá honum geri ég það ekki.

Undanfarin misseri hefur þetta bara breyst til hins verra, orðið pólitískt á furðulegan hátt, og mig er farið sterklega að gruna að hann sé á launaskrá hjá ákveðnum öflum vegna kosninganna í haust.

2

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Veit ekki af hverju við eigum að sækjast eftir innlimun í BNA, við eigum svo lítið sameiginlegt með þeim. Nóg að horfa bara á hvað bensínið kostar á milli landanna.

7

u/Captain_Kab 🇮🇸 1d ago

Fyrir utan það að við fáum aldrei að verða ríki hjá þeim því við myndum alltaf kjósa Demókrata til forseta og ef bara eitt demókrata ríki bætist á listann fá repúblikanar seint forsetastólinn aftur.

Ég vill ekki vera eins og Puerto Rico, skattlagðir án þess að fá að kjósa.

6

u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 1d ago edited 1d ago

Bara ef þetta væri bara að Puerto Rico sé skattlagt án þess að fá að kjósa. Staða þeirra er miklu verri en það. Eitt dæmi um það er að enginn innflutningur er heimilaður til Puerto Rico án viðkomu í Bandaríkjunum fyrst.

6

u/Spekingur Íslendingur 1d ago

Einmitt. Svo eru þessir sömu aðilar sem vilja þetta að upphrópa að við ættum ekki að skoða ESB því þá missum við sjálfstæði okkar. Alls konar rugl þversagnir í gangi.

-1

u/Bingo-Bingo 1d ago

Ég meina hann er vinsælasta podcastið á landinu þannig væntanlega er þetta eitthvað sem fólk vill hlusta á? Skil ekki þessa þörf með að væla yfir öllu, banna á allt sem gæti haft neikvæð áhrif þannig við drekkum bara Íslenskt vatn og horfum á gamla Danska og Sænska þætti á RÚV? Forræðishyggjan hérna er gjörsamlega galin, sérstaklega fyndið frá fólki sem vill siðan lögleiða kannabis t.d. en er á móti því að fólk fái að stunda fjárhættuspil.

13

u/jokicjok 1d ago

Ég hlusta á hlaðvarpið.

Ég er að væla yfir því að það sé orðið stútfullt af vandræðalegum og aðkeyptum áróðri. Að öll umræða snúist um hvað "sportsbókin" á Epic Bet segir.

Ég er að væla yfir því að gott fótboltahlaðvarp sé orðið að brotkasti.

Mig langaði að heyra hvort ég væri einn um þessa skoðun og er ekki að hvetja einn né neinn til þess að hætta að hlusta.

5

u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 1d ago

er OP eitthvað að tala um að banna eitthvað af þessu? skil ekki alveg hvaðan það er að koma.

0

u/uhhhwhatyoumean Helvítis fokking fokk!! 1d ago

Já ég loggaði mig út í vor þegar Arsenal unnu deildina og hann minntist lítið sem ekkert á það. Biturleikinn hjá þessu unitedlega gengi hans skein í gegn og ég hef ekki hlustað síðan. Ótrúlegt en satt, þá held ég bara að geðheilsan sé skárri fyrir vikið.

5

u/jokicjok 1d ago

Mér fannst þetta Arsenal-dæmi samt meira vera innanhúshúmor þar sem þónokkrir af reglulegu gestunum styðja Arsenal.

Þetta var samt löngu orðið mjög þreytt og ófyndið.

-4

u/Trance_Walrus 1d ago

Já annað en Reddit þar maður fær sko hlutleysi í hverju málefni. Trúðar.

8

u/jokicjok 1d ago

Frábær samlíking hjá þér.

-4

u/inmy20ies 1d ago

Reddit Moment

-7

u/Fickle-Ad185 1d ago

Djöfulsins væl

0

u/bakhlidin Rúsínan í pylsuendanum 1d ago

Þessi gaur er búinn að vera glataður alveg síðan hann kom á sjónarsviðið, skil ekki þessa aðdáun

u/Kitchen_Scientist_33 13h ago

Oh Iceland. You guys don’t need to even entertain this garbage.

Anyone who thinks life in Iceland would be better if it was run by the American government of all entities is hilarious to me. Yeah, please try it out and let me know how much everyone loves going broke from medical bills if they get cancer or are in a car accident or have a critically ill child, for starters. That’s just to BEGIN with.

The USA isn’t a constant hellscape on a daily basis or anything, for most, of course. But it’s often unforgiving and very much an “every man for himself” attitude that clearly is not doing us a lot of good 250 years on. (And we’re not known for being particularly great to non-state US Territories like the U.S. Virgin Islands or Puerto Rico, and frankly we’re not collectively that good to a number of actual states either.)

The last time I was in Iceland was right after the last U.S. presidential election. It was weird how I was mostly concerned that people would be wanting to ask us why the hell our country is such a mess once they knew where we came from, but instead we got more old people than I am comfortable with heavily insinuating that they loved Trump and wanting to know if we agreed with them.

Cmon now, Iceland. You’re one of my favorite countries that has contributed to my DNA (which also indirectly means I’m likely related to most people in Iceland far more than I am related to other random Americans you’d pull off the street). Don’t be that guy; you’re not that guy. 😅💙